Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. apríl 2019 var lögð fram fyrirspurn T.ark Arkitekta ehf. dags. 19. mars 2019 ásamt bréfi dags. 19. mars 2019 um stækkun hússins á lóð nr. 38 við Þingás og koma þar fyrir anddyri og sólskála og setja geymsluskúr í suðausturhorn lóðar, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf. dags. 19. mars 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2019.