Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús með auka íbúð og innbyggðum bílskúr úr CLT krosslímdum timbureiningum á staðsteyptum grunni á lóð nr. 4 við Döllugötu. Stærðir: A-rými: 344.4 ferm., 1.431.0 rúmm. B-rými: 3.9 ferm. Nýtingarhlutfall: 0.50. Erindi fylgir lóðablað 5.113.7 dags. 21. febrúar 2008 og hæðablað Reynisvatnsás, Döllugata 2-10 og Gissurargata 1-7 dags. 11. mars 2008. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. mars 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2019. Gjald: kr. 11.200