Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. nóvember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tvíbýlishús á lóð nr. 14. við Gefjunarbrunn. Erindi fylgir afrit af hæða- og mæliblaði, afrit af umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júní 2020 og tillaga að breytingum m.t.t. algildrar hönnunar dags. 21. júní 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. september 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. september 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2020. Stærðir: 1. hæð: 104,0 ferm., 309,9 rúmm. 2. hæð: 129,2 ferm., 445,7 rúmm. Samtals: 233,2 ferm., 783,3 rúmm. Bílastæði í B-lokun: 34,0 ferm., 101,3 rúmm. Svalir í C-lokun: 7,5, ferm. Gjald kr. 11.200