Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. október 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að bæta við tveimur kvistum á norður- og suðurhlið ásamt svölum og stiga niður í garð á 1. hæð í fjöleignarhúsi á lóð nr. 22 við Langagerði. Erindi fylgir afrit af eldri teikningum samþykktum 27. nóvember 1980 og fyrirspurnarteikningum dags. 24. apríl 2019. umboð eigenda íbúðar 01-0101 dags. 23. september 2019 og samþykki meðlóðarhafa áritað á A3 afrit af teikningum A-100 - A-101 dagsettum 3. september 2019. Stækkun: 3.6 ferm., 10.1 rúmm. Gjald kr. 11.200