Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. júní 2021 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Gunnlaugssonar f.h. Dverghamra ehf., dags. 1. júní 2021, ásamt bréfi dags. 1. júní 2021 um svalalokun á hluta þaksvala á lóð nr. 2 við Skógarveg, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Archus dags. 28. maí 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júlí 2021.