Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. janúar 2022 var lögð fram fyrirspurn Ragnheiðar Aradóttur dags. 22. október 2021 um stækkun bílskúrs að Haðalandi 9, lóð nr. 9-15 við Haðaland, ásamt breytingu á notkun skúrsins í íbúðarherbergi, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 21. október 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2022.