Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvisti á vestur- og austurhlið og setja upp nýjar svalir á þak við báða kvistina á húsi á lóð nr. 42 við Tómasarhaga. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. ágúst 2019.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. apríl 2019. Stækkun: 3,3 ferm., 10,4 rúmm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. maí 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019. Gjald kr. 11.200