Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
THG Arkitekta ehf.
dags. 14. maí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grafarlækjar-Stekkjarmóa-Djúpadals vegna lóðarinnar nr. 13A við Krókháls. Í breytingunni felst færsla á lóð fyrir dreifistöð til suðurs, samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
dags. 2. maí 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 26. júní 2019 til og með 24. júlí 2019. Engar athugasemdir bárust.