Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. júní 2019 var lögð fram fyrirspurn Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalags, mótt 8. maí 2019 um að byggja útitækjageymslu og skyggni við aðalinngang (austurhlið) hússins á lóð nr. 2 við Hólmasund og byggja sorp- og hjólaskýli við lóðarjaðar að Hólmasundi, samkvæmt uppdr. Glámu/Kím dags. 30. apríl 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2019.