Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Arkitekta Laugavegi 164 ehf. dags. 17. júlí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Þróttarsvæðis vegna lóðarinnar nr. 2 við Hólmaslóð. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður til austurs til að rúma tækjageymslu annarsvegar og sorp- og hjólageymslu hinsvegar, samkvæmt uppdr. Arkitekta Laugavegi 164 ehf./Glámu Kím dags. 16. júlí 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 4. október 2019 til og með 1. nóvember 2019. Engar athugasemdir bárust.