Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. mars 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN056130, fjarlægja hluta af steyptri girðingu að borgarlandi og bæta við tveimur bílastæðum með rafmagnshleðslustöð á suðaustur horni lóðar nr. 30 við Freyjugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2022.