Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júní 2019 þar sem sótt er um leyfi til að síkka glugga og bæta við og breikka hurðir á suður- og austurhlið beggja hæða ásamt því að breikka svalir einbýlishúss á lóð nr. 21 við Sunnuveg. Erindi fylgir burðarvirkisteikning af breytingu svala dags. 15. maí 2019. Gjald kr. 11.200