Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Noland Arkitekta ehf.
dags. 11. júlí 2019 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulag Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 10 við Gefjunarbrunn. Í breytingunni felst að skipta megi húsinu upp lóðrétt í tvær íbúðir í stað lárétt, samkvæmt tillögu
Noland Arkitekta ehf.
dags. 10. júlí 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 29. júlí 2019 til og með 26. ágúst 2019. Engar athugasemdir bárust.