Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. september 2019 var lögð fram fyrirspurn Hannesar Leifssonar Stephensen dags. 17. júlí 2019 um byggingu 25 m2 sólskála við húsið á lóð nr. 185 við Fannafold. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. september 2019.
Svar
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 20. september 2019 eru ekki gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.