Lögð fram umsókn Mariu Maximciuc dags. 23. júlí 2019 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.174.2 vegna lóðarinnar nr. 76 við Laugaveg. Í breytingunni felst að breytt er texta í skilmálum varðandi nýtingu húsnæðis á jarðhæð, heimilt verði að hafa verslun/þjónustu á rými 102 á jarðhæð, samkvæmt tillögu
Sei ehf.
dags. 23. júlí 2019.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.