Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. september 2019 var lögð fram fyrirspurn Katrínar S. Einarsdóttur dags. 28. ágúst 2019 um að setja kvist með svölum á bakhlið hússins á lóð nr. 10D við Tjarnargötu, samkvæmt skissu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2019.