Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. maí 2020 þar sem sótt er um leyfi til loka svölum með gustlokun og gluggum á kvistum á suðurhlið breytt í húsi á lóð nr. 3 við Hvammsgerði, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 24. apríl 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. september 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2019. Greinagerð frá hönnuði dags. 20. apríl 2020. Stækkun vegna B-rýmis er: 6,5 ferm., 14,8 rúmm. Gjald kr. 11.200