Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. október 2019 var lögð fram fyrirspurn Gula hússins ehf. dags. 30. september 2019 um stækkun hússins á lóð nr. 2 við Skildingatanga sem felst í að byggja u.þ.b. 20 fm. einnar hæðar viðbyggingu vestan við húsið, samkvæmt uppdr. Akkur Arkitekta ehf. dags. 27. september 2019. Við breytinguna færi nýtingarhlutfall lóðar úr 0.24 í 0.26. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2019. Jafnframt er lögð fram leiðrétt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. nóvember 2019.