Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. maí 2020 var lögð fram fyrirspurn Birnis Orra Péturssonar dags. 24. mars 2020 um stækkun hússins á lóð nr. 15 við Keilufell til suðurs, setja kvist á fyrirhugaða viðbyggingu og þakglugga á þak til norðurs ásamt því að byggja nýja bílgeymslu og geymslu í stað núverandi bílgeymslu sem hefur verið metin ónýt, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Kvarði ehf. dags. í febrúar 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2020.