Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta og hækka mæni og útveggi á þakrými þannig að fáist portbyggð hæð í risi í húsi á lóð nr. 14 við Bárugötu, samkvæmt uppdr. Stáss arkitekta ehf. dags. 30. september 2020. Einnig eru lagðir fram eftirfarandi uppdr. Stáss arkitekta ehf.; götumynd og útlit húss ódags. og skuggavarp ódags. Einnig er lagður fram tölvupóstur Friðriks Friðrikssonar dags. 18. febrúar 2021 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdafresti. og skuggavarpsuppdrættir ódags. mótt 17. mars 2021 og 20. apríl 2021. Jafnframt er lagður fram tölvupóstur Friðriks Friðrikssonar 31. mars 2021 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdafresti.
Stækkun: 36.3 ferm., 181.9 rúmm. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. október 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. nóvember 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. nóvember 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2020. Gjald kr. 11.200