Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. desember 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með aukaíbúð og innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 34 við Urðarbrunn, samkvæmt uppdr. Eyjólfs Valgarðssonar dags. 10. desember 2019. Erindi fylgir mæliblað 5.054.6 útgefið 29. ágúst 2018, hæðablað 5.054.6 - B3 og A4 afrit af skráningartöflu dags. 23. nóvember 2019. Stærðir: 331.1 ferm., 1.294.1 rúmm. Gjald kr. 11.200