Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. janúar 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja hæða steinsteypt íbúðarhús með fjórum íbúðum á lóð nr. 54 við Urðarbrunn, samkvæmt uppdr. Mansard - teiknistofu ehf. dags. 8. desember 2019. Stærðir: A- rými: 500.1 ferm., 1.584.1 rúmm. B- rými: 20.0 ferm., 29,1 rúmm. Nýtingarhlutfall : 0.76. Erindi fylgir lóðauppdráttur 5.053.4 dags. 28. janúar 2019. Gjald kr. 11.200