Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. ágúst 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða steinsteypt einbýlishús, einangrað og klætt að utan, með aukaíbúð á neðri hæð og innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 62 við Urðarbrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020.
Erindi fylgir greinargerð varðandi lóðarfrágang ódagsett. Stærð, A-rými: 313,5 ferm., 1.172,1 rúmm. B-rými: 8 ferm. Gjald kr. 11.200