Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða steinsteypt einbýlishús, einangrað og klætt að utan, með aukaíbúð á neðri hæð og innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 62 við Urðarbrunn. Erindi fylgir greinargerð varðandi lóðarfrágang ódagsett. Stærð, A-rými: 313,5 ferm., 1.172,1 rúmm. B-rými: 8 ferm. Gjald kr. 11.200