Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN057859 þannig að óuppfyllt rými í kjallara undir bílgeymslu er innréttað sem vinnustofa, inngangur í kjallaraíbúð er færður á suðurhlið, svölum á 1. hæð er breytt og þær stækkaðar, gluggum er breytt og tröppur á austurhluta lóðar eru færðar að lóðamörkum við einbýlishús á lóð nr. 62 við Urðarbrunn.