Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. mars 2020 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvist á norðausturhlið hússins á lóð nr. 14 við Lynghaga, samkvæmt uppdr. Elínar Þórisdóttur dags. 28. febrúar 2020. Erindi var grenndarkynnt frá 25. mars 2020 til og með 22. apríl 2020 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 26. mars sl. er erindi nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda nr. 14 og nr. 16 ódags. eignarskiptayfirlýsing frá 23. janúar 2000 og bréf aðalhönnuðar dags. 27. febrúar 2020. Stækkun: 7,5 ferm., 6,0 rúmm. Gjald kr. 11.200