Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. mars 2020 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvist á norðausturhlið hússins á lóð nr. 14 við Lynghaga, samkvæmt uppdr. Elínar Þórisdóttur dags. 28. febrúar 2020. Erindi fylgir samþykki meðeigenda nr. 14 og nr. 16 ódags, eignarskiptayfirlýsing frá 23. janúar 2000 og bréf aðalhönnuðar dags. 27. febrúar 2020. Stækkun: 7,5 ferm., 6,0 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Lynghaga 12. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.