Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. febrúar 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að hækka ris, byggja kvisti, bæta við svölum til suðurs, síkka glugga á 1. hæð og breyta í hurðir, fjarlægja burðarveggi á 1. og 2. hæð, lyfta gólfi í þvottahúsi sem er sameign og skipta því á milli eignarhluta tvíbýlishúss á lóð nr. 30 við Hólmgarð. Stækkun: 54.2 fermm., 107.8 rúmm. Nýtingarhlutfall 0.5. Erindi fylgir þinglýst samþykki meðeigenda dags. 22. nóvember 2019. Gjald kr. 11.200