Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. febrúar 2020 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak og byggja kvisti til norðurs og suðurs, innrétta íbúðarrými í risi auk þess sem svalir eru settar út frá kvistum sem snúa til suðurs, baðherbergi stækkað og geymslu komið fyrir í stigagangi, á 2. hæð í húsi á lóð nr. 33 við Hólmgarð. Erindi fylgir samþykki meðeigenda hús nr. 33 dags. 27. janúar 2020 og samþykki eigenda á nr. 33 og 35 dags. 30. janúar 2020. Stækkun húss er: 109,3 ferm., 36,8 rúmm. Gjald kr. 11.200