Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Emils Þórs Guðmundssonar dags. 11. febrúar 2020 um að stækka 1. og 2. hæð hússins á lóð nr. 34 við Súðarvog og breyta notkun hæðanna, ásamt því að breyta útliti hússins til samræmis við hús nr. 36 við Súðarvog. Einnig er lögð fram tillaga/skissa að stækkun hússins ódags. og ljósmyndir af útliti hússins. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2020.