Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl 2020 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna eignaskiptayfirlýsingar sem felast í því að gerðar voru svalir á norðurhlið, og sótt er um að gera eldhús í rými 0001, sameina rishæð 0301 við 0201 með því að brjóta niður vegg sem skilur á milli rýma og að auki er innra skipulagi breytt í húsi á lóð nr.47 við Njarðargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 26. maí 2020 til og með 23. júní 2020. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda, ódags., umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 6. febrúar 2020 og bréf hönnuðar dags. 19. febrúar 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. mars 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. apríl 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 20. apríl 2020.
Gjald kr. 11.200