Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. apríl 2022 var lögð fram fyrirspurn Helga Mars Hallgrímssonar dags. 7. febrúar 2022 um breytingu á notkun rýmis 02 0121 í húsinu að Efstaleiti 25B á lóð nr. 19 við Efstaleiti úr verslun í íbúð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2022.