Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. mars 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. mars 2020 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að stækka glugga og koma fyrir tvöfaldri glerhurð út á svalir á hús nr. 32 á lóð nr. 22 til 34 við Laugalæk. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. mars 2020.