Lögð fram umsókn Jóns Guðmundssonar dags. 20. maí 2021 ásamt bréfi dags. 19. maí 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 19-25 við Viðarrima. Í breytingunni felst að lóðin nr. 25 við Viðarrima verði sér lóð. Einnig er lagður fram uppdr./grunnmynd Jóns Guðmundssonar arkitekts dags. 19. maí 2021.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.