Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. október 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. október 2020 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak og setja kvisti á hús á lóð nr. 28 við Laugateig. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda á lóð, ódagsett. Gjald kr. 11.200