Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. nóvember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak og setja kvisti á hús á lóð nr. 28 við Laugateig. Erindi fylgir samþykki meðeiganda á lóð, ódagsett. Útskrift úr gerðabók embættis afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. október 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2020. Stækkun: 61,7 ferm., 108,8 rúmm. Gjald kr. 11.200