Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. ágúst 2021 var lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar dags. 3. ágúst 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skipholtsreits vegna lóðarinnar nr. 32 við Brautarholt. Í breytingunni felst breyting á bílastæðafjölda, hækkun á vegghæð sem snýr að Brautarholti og hækkun á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr. KRark dags. 3. ágúst 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.