Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. júlí 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvöfaldan bílskúr úr staðsteyptri steypu með timburþaki með þakdúk á lóð nr. 8 við Grímshaga, samkvæmt uppdr. Mansard teiknistofu ehf. dags. 10. júní 2020. Einnig er lagður fram aðaluppdr./afstöðumynd dags. 26. júlí 2020 og skuggavarpsuppdr. Mansard teiknistofu ehf. dags. 6. ágúst 2020. Erindi var grenndarkynnt frá 25. ágúst 2020 til og með 22. september 2020. Engar athugasemdir bárust.
Stærð viðbyggingar er: 48 ferm., 129,6 rúmm. Gjald kr. 11.200