Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2020 var lögð fram fyrirspurn Önnu Samúelsdóttur dags. 11. maí 2020 um að lengja núverandi kvisti sem eru á þaki á austur- og vesturhlið hússins á lóð nr. 29 við Breiðagerði eða bæta við tveimur nýjum kvistum á þak hússins, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. maí 2020.