Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. júní 2020 var lögð fram fyrirspurn Arkitekta Laugavegi 164 ehf. dags. 29. maí 2020 ásamt bréfi dags. 29. maí 2020 um stækkun hússins á lóð nr. 10 við Einimel sem felst í að byggja hæð ofan á bílskúr sem áfastur er við húsið, samkvæmt tillögu
Arkitektar Laugavegi 164 ehf.
dags. 26. maí 2020. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunnar dags. 18. maí 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júní 2020.