Lögð fram umsókn Sigurðar Gunnars Sveinssonar dags. 24. maí 2020 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Húsahverfis vegna lóðarinnar nr. 68 við Dalhús. Í breytingunni felst hækkun á byggingarmagni vegna þegar gerðra breytinga þar sem búið er að taka óútfyllt rými í kjallara í notkun. Einnig er lagður fram uppdr. Túndra arkitektar slf. dags. 12. maí 2020.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018