Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. júní 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu til vesturs, breyta þakformi, breyta og bæta við kvistum, setja svalir á austurhlið efri hæðar, breyta innra skipulagi, sameina eignir og breyta í einbýlishús, íbúðarhúsi á lóð nr. 9 við Mosgerði. Stækkun: x.xx ferm., x.xx rúmm. Erindi fylgir yfirlit breytinga á uppdráttum samþykktum 14. ágúst 2001. Gjald kr. 11.200