Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. desember 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvílyft staðsteypt einbýlishús með innbyggðum bílskúr á lóð nr. 16 við Urðarbrunn. Erindi fylgir samþykki eigenda aðliggjandi lóða, nr. 14 og 18 vegna frágangs á lóðarmörkum ódagsett á A3 teikningu. Stærð: 251,2 ferm., 825,2 rúmm. Gjald kr. 12.100