Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. júlí 2020 var lögð fram fyrirspurn Berglindar Guðmundsdóttur dags. 1. júlí 2020 um að setja svalir á 1. hæð hússins á lóð nr. 76 við Njálsgötu með rennihurð í stað glugga og aðgengi út í garð, samkvæmt uppdr. ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. júlí 2020.