Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að setja svalir á suðurhlið 1. og 2. hæðar á húsi nr. 76 á lóð nr. 76 við Njálsgötu. Stækkun er samtals: 14,4 ferm. svalir 0103 / 0203. Erindi fylgir yfirlit breytinga á uppdráttum sem samþykktir voru 9. mars 1999, samþykki eigenda liggur fyrir á umsóknar eyðublaði. Gjald kr.12.100