Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að gera inndregnar svalir framan við kvist á austurhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 98 við Grettisgötu. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2021. Erindi fylgir fundargerð húsfélags Grettisgötu 90-98 dags. 26. apríl 2021 og tölvupóstur frá Húsverndarstofu dags. 22. mars 2021. Gjald kr. 12.100