Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. júlí 2020 var lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 6. júlí 2020 ásamt greinargerð dags. 2. júlí 2020 um að setja upp sjálfsafgreiðslustöð á lóð nr. 2 við Silfursléttu fyrir stóra atvinnubíla. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2020.