Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. nóvember 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja hæða steinsteypt atvinnuhúsnæði með geymslum á neðri hæð og skrifstofum með tilheyrandi stoðrýmum á efri hæð sem jafnframt er fyrsti áfangi, mhl.01, uppbyggingar á lóð nr. 2 við Silfursléttu. Stærðir: 1.259.4 ferm., 4.508,4 rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 34.534.1 dags. 14.07.2021 og hæðablað 34.534.1- B1 dags í júní 2021. Gjald kr. 12.100