Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. nóvember 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. nóvember 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja hæða steinsteypt atvinnuhúsnæði með geymslum á neðri hæð og skrifstofum með tilheyrandi stoðrýmum á efri hæð sem jafnframt er fyrsti áfangi, mhl.01, uppbyggingar á lóð nr. 2 við Silfursléttu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. desember 2021.
Stærðir: 1.259.4 ferm., 4.508,4 rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 34.534.1 dags. 14.07.2021 og hæðablað 34.534.1- B1 dags í júní 2021. Gjald kr. 12.100