Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. ágúst 2020 var lögð fram fyrirspurn Birkis Hrafns Jóakimssonar, dags. 17. júlí 2020, um stækkun hússins á lóð nr. 94 við Sogavegað sem felst í að byggja ofan á anddyri hússins þar sem nú eru svalir, samkvæmt skissu, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020.